Wednesday, November 21, 2007

It takes time

Þetta er allt að gerast, það er aldrei að vita nema að þetta verði að reglulegum hlut hjá mér að blogga svolítið um hvernig lífið gengur fyrir sig hérna á hjara Kanada. En ég ætla nú bara að taka eitt skref í einu og byrja á því að klára þetta blogg áður en ég fer að lofa öðrum bloggum.

I totally forgot in my last blog to mention the fact that I'm currently staying in Vancouver, Canada. Yes, I'm at the far edge of Canada and I can safely say that I love it here. The amount of natural beauty around the city is incredible and the cultural diversity in Vancouver really appeals to me. So far it has been treating me very well. I'm currently only here as a visitor but I'm applying for graduate studies in Canada for next year and UBC in Vancouver is among the universities I apply to. But for now I staying here with Krista, my Canadian girlfriend that I meet in Grenoble. So at the moment I not to busy but that will all change soon. One of the bigger appeals to Vancouver are the mountains and this winter there will be done some skiing in these mountains. I'm volunteering in Cypress mountain and for one afternoons worth of Speed patrolling I'll get to ski there for free this season, which I don't complain about. But with ski resort all over there are going to be some visits to other places. But more on this later.

Í þá tæpa 2 mánuði sem ég hef verið í Kanada hefur ekki verið setið auðum höndum. Nei, það hefur ýmislegt verið gert og skoðað. Það sem án efa stendur upp úr er heimsókn til Seattle. Ég veit ekki nákæmlega hvað það er að Seattle hefur lengi verið sú borg í Banaríkjunum sem mig hefur mest langað til að heimsækja. Fyrst ég var kominn hingað á vesturströndina og aðeins í um 250km fjarlægð var ekki úr vegi að heimsækja borgina. Krista var líka svo notaleg að finna hið fullkomna tækifæri, þar sem hún keypti fyrir okkur miða til að sjá meistarann sjálfan, Neil Young eða Njáll Unga, á tónleikum sem hann hélt í borginni. Það skemmdi heldur ekkert fyrir að mjög hagstætt gengi Banaríska dollarsins gerði það að verkum að mjög gott var að versla útivista búnað í leiðinni.

Heimsókn til Seattle var alveg frábær. Það var sólskin og notalegur hitti sem tók á móti okkur þegar við komum til borgarinnar. Við höfðum bókað farfuglaheimili sem er alveg í miðbænum á besta stað. Beint á móti heimilinu er Pike Place Market, sem er mest sótti ferðamanna staðurinn í Seattle enda engin furða. Það iðaði allt af lífi á markaðunum og það var hægt að kaupa sjávarfang af öllum stærðu og gerðum og lífi eða liðið. Stærstu krabbar sem ég hef séð voru þar á boðstólum og yfirleit lifandi. Það var samt ekkert verslað á markaðnum heldur var farið í Outdoor Research búð sem er í Seattle. Guð minn góður, þar var verslað. Hanskar, húfa, flíspeysur svo fátt eitt sé nefnt var sett á Visakortið. Það er magnað hvað maður þarf allt í einu mikið af dóti þegar maður kemur inn í svona búðir. Það voru svo sannarlega gerð kjara kaup sem nú þegar eru farin að sanna sig.

En mál málanna voru tónleikarnir um kvöldið. Þeir voru hreint út sagt magnaðir. Neil Young er svo mikill snillingur að það hálf væri hellingur. Við áttum sæti frekar aftarlega en útsýnið var mjög gott. Konan hans Neil sá um að hitta upp fyrir karlinn, það verður að segjast að líkur sækir líkan heim á þeim bænum. Tónlistin hennar var angurvær og falleg. En það er bara ekkert sem jafnast á við Neil. Krista er forfallinn aðdáandi og þegar Neil steig fram á svið einn síns liðs og byrjaði að spila hvern smellinn af fætur öðrum sáttum við tvö saman og grétum af gleði. Ég hef kannski ekki farið á mjög marga tónleika í minni tíð en þetta eru án efa þeir allra bestu. Neil fær alveg 2 full hús af rokkstigum fyrir þessa tónleika frá mér.

Daginn eftir áður rútan var tekinn til baka til Vancouver stoppuðum við í REI. Það er útivistar stórmarkaðs keðja þar sem hægt er að finna allt milli himins og jarðar sem við kemur útivist. Búðinn sem við fórum í Seattle er kölluð flaggskipið og er það nafn með réttu. við svifum þarna um og 3 tímum síðar var komið út með tjald, gönguskó, skíðahjálm og fleira. Krista gerði rosa góð kaup í skíðaskóm og svefnpoka. Við löppuðum út úr búðinni í hálf gerðu sjokki eftir þetta allt saman. Ég get alveg mælt með að kíkja á þessa búð ef maður á þess kost.

Ferðin til Seattle stóð undir öllum þeim væntingum sem ég gerði til hennar. Það er alveg á hreinu að maður þarf að fara aftur þanngað í heimsókn því að okkur tókst alls ekki að skoða borgina til hlítar. Það er nú líka bara gott að hafa afsökun til þess að fara þanngað aftur.

Jæja, ég ætla að láta þetta duga í bili. Þar til næst.
Guðni

2 comments:

Gummi said...

Helvíti öfundar maður þig af því að hafa verið á þessu tónleikum! Bið að heilsa... Gummi Lundi

beamia said...

jeij! takk fyrir að blogga - gaman að geta fylgst smá með :)