Já, loksins. Það tók ekki nema mánuð að koma þessu bloggi í gagnið. Svona er þetta bara, góðir hlutir gerast hægt.
Annars er bara gott að frétta héðan frá Vancouver. Við Krista er flutt íbúðina sem við verðum í vetur. Það er ekki slæmt við erum á góðum stað í bænum, í gögnu færi við Commercial Drive þar sem má finna allt milli himins og jarðar. Allra landa veitingarstaðir, búðir og kaffihús má finna þar. Ég verð að viðurkenna að ég nú ekki búinn að skoða götuna til hlítar en það er nægur tími til þess að skoða staðina betur.
Það má til sönn sögu færa að það rignir töluvert mikið hérna í Vancouver. Einhver sagði mér að Vancouver tróni hátt á listi um meðalúrkomu í Kanada en ég hef ekki fengið það staðfest. En bara af þeim tíma sem ég hef verið hérna kemur það mér ekki á óvart. En annars er ekki hægt að kvarta mikið, hérna hefur maður bara með sér regnhlíf því að hérna fellur regnið frá himnum ekki úr öllum hugsanlegum áttum eins og á Íslandi.
For those of you who don't understand Icelandic, I want to state that I will try to write in Icelandic and English. I want to encourage you all to keep on checking this blog out though you don't understand the Icelandic part because I will post photos and other interesting stuff.
Já, ég ætla að láta þetta duga í bili. This it for now
Guðni
Monday, November 5, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment